.

Ný stjórn tekin við

Published on Tuesday, 15 May 2012

Á vordögum voru kosningar í Nemendafélagi Technis. Niðurstöður voru þær að nýjir stjórnarmeðlimir fengu allir kjör með yfir 80% gildra atkvæða.

Óskum þeim til hamingju með sigurinn.

Vorfagnaður Technis

Published on Tuesday, 08 May 2012

Það er annar í próflokum á laugardag hjá Technis, BJÓR og BBQ!!
Mæting er kl 17.00 í skemmtigarðinn og þar verður skemmtilegt.

Við erum búnir að ráða kok sem sér um að grilla ofaní liðið. Það verður fullt af bjór og öðru gúmelaði í boði.

Bara að koma með góða skapið og til í hörku djamm sem endar í bænum í trilltum dansi. Það eru rútur í bæinn.

Trúbador sér um að halda uppi stemmingunni.

Skráning á Myschool!!!

2500kr fyrir þá sem eru ekki meðlimir Technis.

Staðsetning
Frá Gullinbrú er keyrður um 1 km bein leið og þá sérðu stórt sjóræningjaskip á vinstri hönd. Minigolf bílastæðin taka á móti ykkur beint við innganginn. Paintball, lasertag og hópeflis bílastæði eru 50 metrum innar á svæðinu.

Sjáumst hress og kát :-)

 

Technisveldið

Published on Saturday, 10 March 2012

HR - Musical...Klikkið á Technis lógó!

 

 

 

Árshátíð HR

Published on Tuesday, 06 March 2012

Árshátíð HR föstudaginn 9.mars

 

Dagskrá Technis:

Mæting kl.17.30 í fordrykk sem haldinn verður á skemmtistaðnum Austur. Heimsfrumsýning á HR-musical video verður að sjálfsögðu á sínum stað.

Í boði verður bjór, rauðvín og hvítvín.Ykkur verður úthlutað miðar við hurð og eru það miðar fyrir drykkjum. Barþjónn tekur við miðum um leið og þið fáið ykkur drykk. Hver einstaklingur fær 3 miða og þar af leiðandi 3 drykki.

Tilboð á barnum eftir að áfengi klárast:
Stór bjór 600
Einfaldur í gos : 1000
Mojito : 1200


Ófélagar geta einnig skráð sig gegn því að borga 1000 kr. við Inngang.
Makar eru einnig velkomnir.

Vonumst til að sjá sem flesta
Kv. Technis

 

Vísó í ÍSTAK!!

Published on Wednesday, 22 February 2012

Þá er komið að vísindaferð í ÍSTAK. Planið er svona:

Það verður tekið á móti okkur í höfðuðstöðvum ÍSTAK kl.17.00 og framkvæmdastjórinn verður með glærukynningu á vinnustöðum ÍSTAK og segir okkur frá þeim verkefnum sem eru í gangi.  Að venju verður svo endað á léttum veitingum og reiknað með að móttöku ljúki ca. kl. 19:00.

Aðeins 50 sæti eru laus í þessa snilldar ferð!

 

Það er ráðlagt að fólk komi á réttum tíma. Kynning byrjar kl.17.00 og er mæting aðeins fyrir það. Farið verður með rútu í bæinn eftir heimsókn.

 

Joomla 1.6 Templates designed by Joomla Hosting Reviews